Magga


Ævintýri Suðureyjunnar

Það ætti að vera viðeigandi að setja in örfá orð um mína 2,5 vikur í ævintýrum suðursins. Svo við byrjum á byrjuninni.

Ég lennti í Christchurch að kveldi til þann 21. September og hélt í annað sinn að River Road. Í þetta skipti var ég ein á ferð en meðfylgjandi voru 49 kleinuhringir... Já það er heil saga út af fyrir sig.

Þeir fáu daga sem ég átti í Christchurch fóru í verslunar og skoðunarleiðangra. Ég, Alida, Gunnhild og Sukti skemmtum okkur vel í miðbæjunum við að klifra á styttum og þvíumlíkt... komumst að því að Margrét Hanna kann ekki að hoppa...!!! Svo lærði ég líka að fljúga... Það var svalt!

Daginn fyrir ferðina fórum við Breonna á flippið niðrí bæ. Fórum og bjánuðumst í Botanical Gardens og á markaðinum þar sem við uppgvötuðum einn yndislegasta tælenska rétt sem hefur verið!!! mmmmm ... thai....

Ferðin hófst svo með húllumhæí þann 24. Sept. og yfirfylltist YHA hostelið af ungum og ævintýraþrystum skiptinemum.

DAY2
Frjáls tími í Christchurch gaf tækifæri á enn fleiri myndaflippum og rugli á torginu. Síðan var haldið í Laser Strike sem var geðveikt gaman! Jafnvel þó að ég hafði verið drepin oftar en ég drap aðra... :S Eftir hamaganginn var svo haldið uppeftir til Kaikoura þar sem salatsskorningar hæfileikinn minn var mundaður af bestu kúnnst... hóst... Það kvöld lærði ég m.a. að kasta rúgbý bolta og að drepa með auganu.

DAY3
Við vöknuðum eldsnemma til að fara að synda með höfrunum þennan morguninn. Ég verða að segja að að klæða sig í níðþrönga blautbúninga er ekki eitthvað sem ég kýs að gera marga morgna... Þegar útá hafsjó kom og höfrungarnir voru í metra frjarlægð var ferðinni frestað eða bara hætt við allveg vegna veðurs. Dam those westerly...!!
A.m.k. sá ég höfrunga og náði mynd af einum eða tveim. Rútan okkar kom og sótti okkur og keyrt var af stað til Kaikoura Pt til að skoða seli... Hahaha það var gaman... Feitubollur! Jæja svo var klárað ferðina til Motueka

DAY4
Vaknað snemma eins og ávallt og haldið til Abel Tasman National Park þar sem við fórum á sjó kajak. "Got to keep your Jhonny out!". Ég og Lea frá Bandaríkjunum gerðum heiðarlega tilraun til að ræna Kiwi-mascottinu sem hét því fallega nafni:Bob, af öðrum báti en okkur mistókst hræðilega með þeim afleiðingum að ég velti næstum bátnum. Gaman það. Eftir það "löggðum" við kajakunum á ströndinni og fengum okkur hádegisverð. Þar bjuggum við til mennskan píramída og fólk tók bjagaðar myndir af mér með hádegisverðinn minn.... Eftir þetta var gengið tilbaka í gegnum hæðir og skóga. Á kajak staðnum fengum við svo svakalegan hádegisverð... aftur.... það var s.s. snakk, nammi, pulsurúllur (?), djús og ávextir... Þið getið ímyndað ykkur hvað var minnst snert... Jæja aftur uppí rútu og haldið til Murchinson. Þar var hópnum skipt í fjóra hópa; S-Ameríka, Skandínavía, Evrópa (Ítalía) og Asía (að viðbættum ameríkana og þjóðverjum). Við kepptum í nokkrum leikjum og liðsandinn var að gera útaf við okkur, þó sérstaklega s-ameríku og skandinavíu *ólei ólei ólei!*.

DAY5
Við byrjuðum akstur dagsins á Punakaiki eða Pancake rocks (Pönnnukökusteinar). Þar löbbuðum við í gegnum kílómetrana af flexi til að sjá stafla af grjóti :D Útsýnið var samt geðveikt og við stelpurnar nýttum tækifærið til að flippa á myndavélunum enn aftur. Við urðum náttúrulega síðastar út úr flexinu :$ Áfram var keyrt og næsta stopp var Fox Glacier. Þar horfðum við á eitthverja mynd sem var afskaplega riglandi en flott! Flowing West hét sú og sýndi hina fjölbreyttnu fegurð Suður Eyjunar... I LOVE NZ! Jæja þar fóru sumir í þyrluferð upp á jökulinn en aðrir skoðuðu bæinn.

DAY6
Þennan dag keyrðum við til Wanaka og fórum á stað sem hét þvi fallega nafni: Puzzling World. Eða pússlu heimur. Þar var allskonar svona sjónblekkingar dæmi og herbergi sem hallaði ákveðna gráðu... það var viiirkilega spes! Svo var svona völundarhús. Ég og völundarhús... ! Þetta byrjaði allt svo vel, bara beygja hér og beygja þar... ekkert mál! Ég fór að röfla um hversu létt þetta væri... Svo kom sólin, pirringurinn og ég uppgvötaði að við vorum gjörsamlega villtar. Það bætti ekki að hitta annað fólk á leiðinni sem var einhverneginn miklu miklu fljótari að finna þessa bölvuðu turna! Jæja ég komst heil út!! Þegar í Wanaka kom fórum við stelpurnar í bæinn og versluðum fyrir kvöldið. Þann dag fengum við stepurnar að snyrta strákana og dragkeppni var haldin. Moritz a.k.a. Lovely var okkar módel og lennti hann í topp 3. Við klæddum hann í bleikar blúndunærbuxur og afarstuttan kjól. Til að toppa þetta allt og sýna nellurnar kenndum við honum "the bend and snap"

DAY7
Stutt ferðalag til Queenstown og þar byrjar gamanið/kvíðinn. Við stoppðum hjá Kawarau Bridge þar sem ég, Margrét Hanna, átti að fara í 43 metra teygjustökk. Fólk byrjaði að fleygja sér af brúni og kvíðinn minn hvarf. Kiki, vinur minn japanski ákvað að hoppa í uppáhalds bolnum sínum sem stóð á: "one tequila, two tequila, three tequila, floor". Ojæja, kauðinn hoppaði og fór að sinni ósk í kaf í ánni. Þegar tegjan strekktist svo aftur og hann kom uppúr var hann nakin að ofan og bolurinn hans sást fljóta niður með ánni... þetta var án efa það fyndnasta teygjustökk sem ég hef séð! Vegna einskærrar tilviljunar endaði ég á því að vera sú síðasta af okkar hóp til að stökkva. Ég ákvað að vera öðruvísi og heimtaði að fá að hoppa afturábak þrátt fyrir að kallinn sagði að ég ætti frekar að gera það eftir 3-4 hopp. Ég bað einnig um að fá að snerta vatnið með kollinum. DJÍSUS!!!! teygjustökk er fráááááábært!!!!! Ég endaði einhverneginn á því að fara á kaf niðrá læri og var rennblaut og hæper aktív eftir á!! Magnað!!!! Þegar fólk var búið að jafna sig var farið lengra niður eða upp eftir ánni og farið í Shotover Jet. Sem var geðveikt gaman! Um kvölið héldum við svo partý í sjónvarpsherberginu við spænska tónlist og við dönsuðum fram á rauða nóttina. Ég hitti svo Gunnhild og Ali aftur sem voru í fyrri ferðinni ásamt nýja Íslendingnum Kára. Eyddi heilmiklum tíma í að reyna að því hvaðan ég þekkti þann kauða, en endaði daginn á því að syngja þjóðsönginn eða það litla sem ég kann úr honum.

DAY8
Vonbrigði og Vonbrigði!!! Þennan morguninn átti ég að fara í fallhlífarstökk, 15000 fet. Næstum mínúta af frjálsu falli... En nei, því var frestað vegna skýja. Við vorum beðin um að koma aftur um hádegisbilið því skýjin væru kannski farin þá... nei. Við vorum beðin um að koma aftur um þrjúleitið, en nei. Dagurinn var til einskis! En jæja, ég, breonna, claudia fórum á flippið og leigðum þriggja manna hjól og skoðuðum þannig Queenstown. Það var alltof fyndið! Sama dag hönnuðum við okkar eigin hettupeysur sem eru þokkalega flottar!! Ég kom með þá hugmynd um að búa til nýjan bol handa greyið Kiki og nokkrar stelpur voru mjög spenntar fyrir því. Við bjuggum því til bol sem á stóð: Kiki lost his t-shirt... + mynd af manni í teygjustökki og aftan á stóð ... so we gave him a new one. Þetta kvöld fórum við flest út að borða á ítalskan veitingastað og við kölluðum Kiki upp og færðum honum bolinn. Ég hef aldrei séð eins glaðan Japana :D Þennan dag hafði fyrri ferðin yfirgefið Queenstown og þriðji hópurinn var nú með oss. Þar hitti ég hana Helgu mína! Þennan dag voru fjórar ítalskar stelpur úr mínum hóp handteknar fyrir þjófnað og einangraðar frá hópnum. Við tók mikið drama. Ojæja, við vorum nokkur sem nenntu ekki að sofa þetta kvöld og sátum í stofunni að kjafta. Ég fékk þá flugu í hausinn að raka lappirnar á Moritz og dundaði mér við það heillengi! Þetta var þvílíkt flipp og endaði greyjið strákurinn með eina rakaða löpp og í hina hafði ég rakað "AFS2"... Þegar við reyndum að losa okkur við öll hárin kom kona og skammaði okkur:

Kona: What are you doing???
Moritz: Burning hair....

DAY9
Næsta dag fórum við sem komust ekki í fallhlífarstökk í White Water Rafting. Sem var geðveikt gaman. Til að komast að ánni þurftum við að keyra veg sem er einn af tveimur hættulegustu vegum Nýja Sjálands, þessir tveir eru einu vegirnir sem bílaleigubílar eru ekki tryggðir á. Nokkuð flott og við sáum staði sem LOTR var tekið upp á. Svo kom áin. Eftir nokkrar flúðir (rapids) og mikið fjör endaði raftingið á göngum með flúðum á endanum. Það var kooooldimmt þar inni! :D Enginn úr mínum bát datt úr nema þegar við vorum að toga bátinn aftur upp á ströndina... þá datt ég í ánna... ! :$ Eftir raftingið var gufubað, heit sturta og matur... svo skelltum við okkur aftur niðrí queenstown og hoppuðum beint aftur uppí rútu. Svo var keyrt til Mt Cook. Sem minnti mig óendanlega mikið á Íslenskt landslag. Jæja þar var tíminn kominn til að árita fána, formúluna og fyrir mig: lúr á sófanum.

DAY10
Keyrt aftur til Christchurch þar sem gamanið endaði ekki. Buddyar skiptust á gjöfum, þar sem minn buddy var sendur heim fékk ég enga gjöf :( Svo var uppboð á þeim hlutum sem gleymst höfðu í rútunni... fólk þurfti að gjörasvo vel að kaupa hlutina sína aftur. Haha, þetta kenndi manni að aldrei gleyma neinu!! Eftir uppboðið var raffle þar sem fólk vann allt frá bananahýði að árituðum All Blacks bolta/fána. Sjálf vann ég bol frá Shotover Jet. Um kvöldið fann ég riiiisastórann dall af hárspreyi og ég, Gun,Kiki og Moritz skemmtum okkur afskaplega vel með hann. :D Ég og hin norska Gunnhild skemmtum okkur svo fram á morgun og kjöööftuðum alltof mikið, létum ekki þrumurnar spilla fyrir.

DAY11
Ég vaknaði snemma til að kveðja þá sem voru að fara á flugvöllinn, með hárið beint útí loftið vegna hárspreys... Við hin fórum svo aftur að sofa en ákváðum að hittast í stofunni hálf tíu. Ég fór aftur að sofa og auðvitað svaf ég yfir mig, vaknaði tíu mínútur yfir tíu, þ.e. tíu mínútum eftir check out. Ojæja ég missti þó ekki af miklu þar sem fólk var enn að borða morgunmat. Við fórum svo nokkur niðrá torg, fengum okkur morgunkaffið og löbbuðum í paintball, sem var svo lokað. Löbbuðum í keilu, sem bilaði á okkur en við náðum að klára, löbbuðum á skauta sem voru lokaðir og tókum svo strætó aftur í bæinn. Þar dróg ég þau öll á Joyful, kínverska veitingastaðinn sem bræður mínir sýndu mér. Hann sló í gegn og er ég núna flugfær í að borða með prjónum!!! :D Um kvöldið fórum við Waitekere stelpurnar svo í asískan myndabás og svo í bíó og endaði ég á að gista með þeim á hótelinu þeirra. Gjéggjaður dagur!!

Síðasti dagurinn minn í Christchurch var frekar undarlegur, mikiðu um labb! Ég fór um morguinn á kaffihúsið hans Charlie og fékk lykilinn að húsinu, hennti dótinu heimm, vaskaði mig og panntaði bíl útá flugvöll. Fór svo í bæinn og hitti Here, Merce og Karinu og kvaddi þau. Labbaði síðan með Charlie aftur heim og hoppaði beint útá flugvöll. Eftir alltof stutt flug var ég lennt í Wellington þar sem Helga beið mín. Við skiptumst á sögum um lífið, tilveruna og ferðinrnar okkar.

Næsta dag hittum við vini og hún sýndi mér um. Við versluðum átum og skemmtum okkur konunglega í höfðuborginni!!!!

Ég, Breonna, Claudia, Gunnhild og Sukti tókum svo rútu tilbaka. Heilir 11 tímar til Auckland á tveggja hæða rútu.. geðveikt!! :D Vorum komnar heim 6.30 sunnudagsmorgun og fólk var enn fullt niðrí bæj. Hvað var það fyrsta sem við gerðum niðrí bæ? starbucks!!!

Jæja nú er ég svo komin aftur til elsku bestasta skítuga Auckland og gæti ekki verið ánægðari með lífið í Nýja Sjálandi!!!

Fékk góðar einkannir úr prófunum mínum... og góðar viðtökur á afs fundinum í gær!

Bless í bili!!!
MAGGA

6 Responses to “Ævintýri Suðureyjunnar”

  1. # Anonymous Mamma

    Vá, þetta var skemmtileg lesning. Greinilega þrusu fjör og djamm.. Hlakka til að fá að sjá myndir.
    Knús og kossar frá okkur kellingin mín.  

  2. # Anonymous Adda

    Þetta hefur greinilega verið dúndur gaman.
    Notaðu tíman vel sem eftir er......hann bara styttist og styttist.......................og styttist!
    Ofsa gaman að fá að heyra um ævintýrin þín.  

  3. # Anonymous íris

    ohh hljómar ógó næs... =)
    Er pínku mikið abbóóó, er að læra undir próf viku eftir viku... =(
    Elsk you.. Sakn you !=* 88 dagar í að þú komir heim skvízí !  

  4. # Anonymous Móna

    Ég get ekki lýst hversu afbrýðissöm ég er!

    Veistu hvað mig hefur lengi langað til að synda með höfrungum? Heppna þú að hafa verið meter frá þeim ;)

    Djísess kræst!! á meðan er ég hérna deyjandi úr veikindum ;)

    Nú jæja,
    gott að þú skemmtir þér svona vel !

    Love,

    Móna  

  5. # Anonymous Jói Brósi

    Þetta líkar mér magga mín lifa lífinu með STÆL svona á maður að drepa tíman nema ég er ekki viss um að ég hefði látið mig falla 43 metra þó að það væri bundin teyja um lappirnar mína :( Brillíant lesning og meðan ég man þá færð þú ekki að koma nálægt löppunum á mér með rakvél ;)  

  6. # Anonymous Begga =D

    vá ég er öfundsjúk en ég er líka bara mjög stolt að einn Hrútfirðingur skuli hafa tekið svona stórt stökk!! :D:D:D
    vá og æðislegt að fá svona mikinn texta til að lesa :D
    búin ða bíða svo lengi :P
    elsk elsk =*  

Sendu inn athugasemd



© 2006 Magga | Blogger Templates by GeckoandFly.
No part of the content or the blog may be reproduced without prior written permission.