Magga


She's a mod.... (8)

Já það hefur verið ansi athyglisverð vikan hjá mér !

Prófadagar, en það er ekkert merkilegt að segja frá þeim... fyrir utan að ég svaf yfir mig í ensku prófið og aðstoðarskólastjórakonumanneskjan hló að mér!

Jæja, á föstudeginum skellti ég mér í miðbæjinn og hitti afkaplega fagurt og yndislegt AFS fólk sem einkennilega var allt frá Skandinavíu. Ég labbaði um með Avi, Finn, Paul, Jakob og Gunnhild (Grænland, Færeyjar, Svíþjóð og Noregur) þar til Lilly frá Paraguay kom og eyðilagði allt. Djók! Ég elska Paraguay!



Jæja ég yfirgaf þetta lið samt og hoppaði uppí lestina og hélt vestur. Við meðlimir Waitakere kaflans höfðum ákveðið að kynnast nýju krökkunum okkar og fórum öll saman á Mongólíkan hlaðborðs veitingastað sem var gjééggjaður! Eða það var mín skoðun. Eftir matinn týndist fólkið heim, nema ég og Silja fórum niðrí bæ þar sem ákveðnir aðilar úr Eystri og Suðri áttu að vera saman komnir í Albert Park með einhver mislögleg drykkjarföng. Við misstum af þeirri skemmtun en sáum hluti í þessum garði sem myndi særa sjón flestra manna...

Ég, færeyjingarnir og norsarinn ákváðum að fara á kaffihús en enduðum á Burger King. Veij!



Á laugardeginum hitti ég Breonnu, Silju, Gunnhild og Tulio niðrí bæj, eins og vanalega. Þetta var merkilegur dagur í sögu skiptinemaferð minnar, ég loksin fann mér veski! Eftir sjö mánaða leit, þá á ég veski! Ég fann asíubúann í sjálfri mér og keypti veski af þeim máta!

Eftirfarandi kvöld hélt gamanið áfram með Silju, Facundo, Töru og Josh einnig einhverjum rússum sem allir hétu Alexi , náunga frá Kazakstan og nýjum Brasilíkum vinum sem hétu Phillip og George...

Ég lærði merkilega lexíu þetta kvöld, það er ekki skynsamlegt að svara fyrir sig niðrí bæ. Aldrei!

Á sunnudaginn var þessi úber svali fjölskyldudagur í tilefni af því að Charlie var í Auckland. Við byrjuðum daginn á að fara á kínverskan veitingastað fyrir Yum Cha, hádegisverð. Þetta er ruglllllað! Yum Cha er þegar þú færð smotterí af basically ÖLLU sem þau elda, eða það fer eftir hvað þú vilt. Þar smakkaði ég t.d. maga úr belju og smokkfisk. Auvitað færðu svo Chai (kínverkst te) með... sem er ljúffengt!

Eftir þetta var haldið heim og fjölskyldumyndartaka var munduð í því mikla graslendi sem bakgarðurinn okkar hefur uppá að bjóða. Síðan skélltum við okkur í keilu og þykir mér leitt að tilkynna að ég hef ekki erft hæfileikana hans pabba. En ég fékk þessa fínu sokka á keilustaðnum... ! haha...



Mánudagskvöldið hittumst við Silly á starbucks og ræddum lífið og tilveruna yfir ylvolgum kaffibollunum. Þrem og hálfum tíma seinna vorum við vinsamlegast beðnar að fara þar sem kaffihúsinu var lokað. Skömm að þessu!

11 Responses to “She's a mod.... (8)”

  1. # Anonymous Móna

    Töffarinn þinn!

    Það var gaman að smsast við þig a laugardaginn!


    Luv from Iceland...  

  2. # Anonymous íris

    Ég brosi alltaf heilann hring þegar þú bloggar =D
    Meira svona, þá brosi ég meira :D  

  3. # Anonymous Hulda og Jói

    Ég lærði merkilega lexíu þetta kvöld, það er ekki skynsamlegt að svara fyrir sig niðrí bæ. Aldrei!

    við viljum fá útskýringu á þessu og svaraðiru ekki fyrir þér með einum af þínum frægu höggum :o)  

  4. # Anonymous Verena

    ello margreto my lady! Have fun on ur south island trip!!! and dont forget how to talk english! ;)
    dont forget to brush ur teeth and u sould wear socks sometimes-not just ur jandals.
    love u heaps sis!!

    PS:sometimes i wish i could read icelandic :(  

  5. # Anonymous Begga =D

    jei blogg :D
    spennandi, þúrt alltaf að ferðast og skoða meira, ég vil fá að sjá fullt af myndum og heyra fullt af sögum :D:D:D
    luv u =*  

  6. # Anonymous Helgaaaa

    Heyyyyyaaaaaa!!! :D

    Guddd eg hlakka svo til ad sja thig!!!

    eg a sko ekki inneign svo eg svara ther her! wuhu!

    allavega yeah! svo hvad verduru aftur lengi? geturu ekki bara buid herna ;)

    jess jess jess!!! ertu ordin spennt fyrir sudureyjaferdinni!!!

    eg er ekkert svako spennt....;)

    Bjalla vonandi i thig bradlega ;)

    GIBBAGIABBA!!! :*

    sjaaaumst bradlega ;)


    IIIIHHHHHAAAAAAAAA :D  

  7. # Anonymous Begga =D

    flottar myndir :D:D:D  

  8. # Anonymous Begga =D

    100 dagar í þig Magga!!! :D:D:D:D:D  

  9. # Anonymous Begga =D

    mér langar að sjá meira blogg :D
    meira blogg!
    Meira blogg! :D:D:D:D
    elsk elsk =*  

  10. # Anonymous Hulda

    Magga kemur ekki heim til sín fyrr en 8 okt, svo ekkert blogg á meðan :o(
    vonandi fáum við þá vara mjög gott og langt blogg :o)  

  11. # Anonymous Begga =D

    æ já hahah gleymdi því :P
    en já vonandi :P  

Sendu inn athugasemd



© 2006 Magga | Blogger Templates by GeckoandFly.
No part of the content or the blog may be reproduced without prior written permission.