Magga


Heimurinn versnandi fer

Í leti minni og þrjósku hef ég fundið fyrir mikilli sorg sem og vorkunn fyrir Íslensku þjóðinni. Við erum einstök og stolt þjóð sem hefur skapað sér mikla sérstöðu á meðal annara landa heimsins. Við erum höfum alltaf skorið okkur örlítið úr hinum norðurlandaþjóðunum og erum allveg ein á báti (eða eyju) þegar litið er til heimsálfunnar. Því þykir mér afskaplega sorglegt að sjá hvað hefur orðið að okkar siðum og venjum og hversu mikið "litlir" hlutir hafa breyst.

Bláa Ólpalið. Vá, það er allveg eins og í laginu fræga "you don't know what you've got 'till its gone". Ég keypti mér ekki oft blátt ópal, í raun held ég að ég hafi aldrei keypt mér slíkt, en oft notið þess samt sem áður. Ég veit að margir Íslendingar elskuðu þessar litlu sætu töflur og sumir voru einfaldlega háðir því (þeir höfðu greinilega ekki heyrt um hægðarlosandi áhrif xylitol-taflna). Með hug minn fastan á þeim sem elskuðu þetta lostæti og mína hagsmuni minna eigin bragðlauka fyrir brjósti syrgi ég með öllu mínu hjarta hið Blaá Ópal sem kryddaði tilveruna áratugi saman og mun ávalt eiga sér sess í hjarta okkar sem urðu þess njótandi. Svekkjandi fyrir 2005 kynslóðina sem mun aldrei vita hvernig það var að búa í heimi þar sem Blár Ópal var framleiddur. Nói Siríus og Íslenska þjóðin kvöddu gamla góða ópalinn árið 2005 þegar verksmiðjan sem framleiddi klóróformið í töflurnar hætti skyndilega. Þetta var dagur sem seint mun gleymast á okkar ströndum.





Gulur Strumpa Ópal. Það særði mig afskaplega djúpt að heyra að framleiðslu væri hætt á gulum strumpaópali... "Hvað er í gangi í heiminum, má fólk ekki njóta ópals lengur??" spurði ég bitur sjálfa mig. Ólíkt Bláa Ópalnum var þetta sælgæti sem ég var ávallt tilbúin í að greiða himinháar upphæðir fyrir. Gulur strupmaópall var fullkomnun og mun ekkert getað námundað við hann. Bíóferðir munu aldrei verða aftur eins og þær voru í denn, og mun hugur minn ávallt dvelja á þeirri sælu sem umlauk mig þegar ég hafði slíkan pakka við hönd. Árið 2006 ákvað hið sænska Malaco að hætta framleiðslu þessa yndismola að þeim sökum að markaðurinn væri of lítill fyrir lakkrísinn. Eða með öðrum orðum, það var ekki nóg að við Íslendingarnir dáðum þett gotterí, því við erum einfaldlega ekki nógu merkileg í augum sænskra sælgætisframleiðenda! Gat Baugur ekki bara keypt þetta fyrirtæki í staðin fyrir einhver smáfyrirtæki í Bretlandi og Danmörku?? Þá ættum við kannski enn smá séns á því að geta valið milli fjögurra lita á strumaópalnum. Já ég er enn bitur eftir eitt ár, ég fékk ekki að kaupa og njóta míns síðasta gula strumpaópals :( Í þetta skiptið á við lagið "how do i live without you? I want to know... how do i ever, ever survive?"

Magga



And the rest of the world sleeps...

Eitthvað ætla ég nú að minnka skrif mín... eins og þið hafið kannski tekið eftir. Héðan í frá, um hríð, mun taka við svokallað "photolog", þ.e. mynd af einhverju nýlegu og örstuttur texti um viðkomandi efni. Hver veit, kannski fáiði að lesa málefnalega pistla eða áhugavertlestrarefni einn daginn. Njótið vel.
------------------------------------------------------------------------------------------------


Ég, Móna og bróðir hennar Daníel skelltum okkur á Þingvelli síðastliðinn laugardag (14. apríl) og brugðum okkur í víkingaham. Mér finnst ofboðslega gott að vera á Þingvöllum, þar er fallegt allt um kring, frábært útsýni og stórmerkileg saga. Það er svolítið einkennilegt að einmitt þarna var fyrsta þing heimins stofnað. Við Íslendingar höfum skipað þing lengur en nokkur önnur þjóð en samt erum við ekkert svakalega lögprúð þjóð. Hvernig stendur á því?

Margrét Hanna (Magga)

PHOTOS : http://myndir.ekkert.is/maggga/

Just hear this and then I'll go. You gave me more to live for. More than you'll ever know

AFS is:


... how we change

... how we grow




... how we survive



... how we love


It was unforgettable, remarkable, amazing, crazy, heartbreaking, sad, difficult, wonderful, exotic, exciting, fun, new, special, brilliant, important and a life changing year.


To anyone involved in it, you changed my life. More than you'll ever know.


I THANK YOU. I MISS YOU. I LOVE YOU


Margrét/Magga

Tímamót

Það er tími til að hella úr hjartanu og blogga í hið síðasta sinn í Nýja Sjálandi.

Aftur er komið að merkilegum tímamótum í lífi mínu. Nú er ég ekki einungis að tala um komu 2007, ár sem hefur mikið uppá að bjóða. Heldur einnig það sem hefur verið mér efst í huga síðastliðna viku, brottför og heimkoma.

Þetta eru tveir gjörsamlega ólíkir atburðir, hvor erfiðari en hinn. Ég kvíði fyrir báðum.

Takið þessu ekki á vitlausan hátt, ég er ekki að halda því fram að ég vilji ekki sjá ykkur aftur! Þvert á móti, ég er afar spennt fyir því að sjá ykkur öll.

Á þessari stundu sit ég í sinnepsgulu herbergi í húsinu mínu í NZ. Þetta er ekki lengur bara eitthvað hús sem ég gisti einstaka sinnum í, heldur er þetta "heima". Sólin er ennþá hátt á lofti og jafnheit og hún var klukkan þrjú. Klukkan er sjö að kveldi til núna. Ég var að enda við að bjrótast inn í húsið mitt, í mitt fyrsta skipti! Einhver ákvað að vera sniðugur og fjarlægja lykilinn sem ég nota til að komast inn. ojæja eftir frekar vandræðalegt klifur á múrsteinshúsinu, brölt ofan á ruslatunnu og sveiflur af niðurfallsrörinu rann ég flatmaga inn um eldhúsgluggann og plompaði á gólfið. Flottur endir á góðu ári....

Eftir aðeins 5 klukkutíma rennur nýtt ár í hlað, 2007!! Ég trúi ekki að árið sé búið. Eftir rétt rúma 3 daga yfirgef ég heimilið mitt, hverfið mitt, kaflann minn, borgina mína og landið mitt... og ég tala ekki um fjölskyldu, vini, kunningja, búðir, hefðir, maóri, slangur, lögaldur, starbucks og kyrrahafið.

Þetta er búið að vera frábært ár! 2006 hefur verið mitt uppáhald og ég mun aldrei gleyma því. Ég get ekki séð mig geyma þeim stöðum sem ég hef séð þetta árið, því fólki sem ég hef kynnst, hlutunum sem ég hef gert og síðast en ekki síst vinum mínum frá öllum heimshornum.

Fyrir ári eða tveim, hefði mér aldrei dottið í hug að ég ætti eftir að þekkja fólk frá hverri einustu heimsálfu... tjah það er ef suðurskautið er ekki tekið með ;) Nú gæti ég ekki ímyndað mér að eiga þetta fólk ekki að... ég væri ekki eins án þess!

Það verður frekar erfitt að kveðja allt það fólk sem hef orðið vön að sjá dags daglega, sérstaklega þegar ég veit að ég á eftir að sjá fæst af þeim aftur. Ég hef lofað sjálfri mér að ferðast og að reyna mitt besta við að heimsækja þau, að halda sambandinu gangandi, skrifa og hringja... það verður erfitt. Ég vona að ég missi ekki samband. Ég vona að þau sakni mín eins mikið og ég á eftir að sakna þeirra. Ég vona að ég sjái þau öll aftur einn daginn.

Ég vona að það verði ekki OF skrítið að koma heim. Ég vona að ég tali ekki of mikið við ykkur á ensku. Ég vona að ég verði ekki of breytt. Ég vona að þið verðið ekki of breytt. Ég vona að ég leiði ykkur ekki of mikið þegar ég tala um NZ. Ég vona að ég verði ekki afksaplega leiðinleg og neikvæð í garð Íslands. Ég vona að vatnið sé eins gott og tært og það var í janúar. Ég vona að mjólkin sé eins fersk og köld og ég man. Ég vona að Ísland sé ekki eins dýrt og það var! Ég vona að ég passi inn heima Ég vona....

Ég vona að Ísland sé eins frábært og yndislegt og ég held fram að það sé. Ég vona að Íslendingar séu eins frábærir og ruglaðir og ég man. Ég vona að íslenskan verði ekki of erfið.

Ég vona að þið skiljið...
Ég vona að flugið heim verði ekki of leiðinlegt!! ^^

Ég vona að komast til Norðurlanda til að hitta vini og drekka.
Ég vona að komast til Evrópu til að hitta vini og ferðast.
Ég vona að komast til Asíu til að hitta vini og borða.
Ég vona að komast til S-Ameríku til að hitta vini og dansa.
Ég vona að komast til Ameríku til að hitta vini og versla..... Ég vona!

Ég vona að allir þeir sem ég hef kynnst þetta árið eigi frábæra ævi...

Ég vona að þið heima eigið góð áramót...

... og góða ævi auðvitað, en ég verð þar til að sjá ykkur verða hrukkótt og gömul!

Takk fyrir allan stuðninginn sem þið sýnduð, þolinmæðina og skrifin í gegnum árið mitt!!!

ANNÁLL 2006
JANÚAR
Mánuðurinn sem ég kvaddi Hagkaup eftir 2 ár í vinnu.
Móna varð 18 ára.
Ég fékk frábært kveðjupartý frá Sykurpúðunum.
Kveðjuboð var haldið fyrir fjölskylduna.
Brottfararnámskeið AFS.
Kvíði og spenna.
FEBRÚAR
Brottfararfundur hjá AFS.
Kvaddi heimili, vini og fjölskyldu.
Fór útá flugvöll og sneri aftur til RVK vegna vegabréfsáritunar.
Hulda varð 22 ára.
Fór loks út 4. Feb
Lennti í Nýja Sjálandi, Waitangi day 6. feb
Ný fjölskylda, nýtt hús, nýtt tungumál
Skólinn byrjaði.
Sólbruni og fríkeypis útitónleikar.
Nýjir Vinir...
Puhoi
MARS
Polyfest
Bærinn, bærinn, bærinn
AFS vinir
tap blárra penna
Around the bays hlaupið
Gateway camps AFS
Aloha night og ævintýri
APRÍL
Filo, Filo, pizza
Argentínubúar og Alida
Dýragarður, Kelly Tartons, Rangitoto
Helga Friðriksdóttir og Sigurrós
The Rolling Stones, þjóðverjar og kiwi
Riikka 18, partý
Alida 18, ísbar og bungy
Frekknur og sól
MAÍ
Fótbolti
Leigh, Waitakere kaflinn!
Pakki frá Íslandi
Pool, ponsonby, kaffihús
fótbolti, stærðfræði?
verena
JÚNÍ
Hamilton, field days!
Waitakere!!!
All BLACKS - ireland
Top girls, kökusala
Lukas og þjóðverjar
Devenport los incas kvöldverður
Op shops
Skólaperri, stressaðir morgnar og skammir frá skóla
Mid stay camps
Stormur og rafmagsnleysi
Bay of Island, russel
Queens b-day
JÚLÍ
Maori
Christchurch
Charlie + Jerm
Holidays
Hundar
gömlu krakkar fara
vinir fara
ég er ekki á staðnum til að kveðja
ég er gömul
nýjir krakkar
ÁGÚST
Supernova
The Ball
Fiji
Maori Queen dó
All Blacks - Australia
Fiji Fiji Fiji
Sólbruni
Sólbruni og landafræði
nýjir þjóðverjar
SEPTEMBER
Rip Steve Irwin
Waitakere og AFS
nýjir krakkar eru vinir
Saga, víetnam
fjölskylda
kínverskur hádegisverður
myndartökur og djamm
út að borða
OKTÓBER
Suðureyjarferðin mikla!
Teygjutsokk
Rafting
höfrungar
Shotover Jet
Suðureyjan er flott!
nýjir vinir... I lluuuv them
Christchurch. charlie og jerm
Wellington . helga
Rúta
Pool
bíó
WSC
pakki og myndir
vinstri sinnuð ? pólítík
hrekkjvaka....
charity ball!
svampur sveinnss.
skóli og partý
NÓVEMBER
afmæli gun
guy fawkes
út að borða
trash for fashion
girls night
international prizegiving
skóli búinn
maorí búið
pool
prizegiving
Pt. chev beach
prue og rose
sjónvarpskaka
sorglegheit og sól
GLEÐI
santa parade
waitomo
afmæli í waiheke
DESEMBER
leavers dinner
jól
new plymouth
road trip með múttu
tauranga
paeora
taupo og rotorua
Lea ;*
Clubbing
síðasti kaflafundurinn
knúsar, kossar og kveðjur
versla!
Green stone!
Gistingar hér og þar!
VIIIINIR!!!
barnseignir
end of stay camps
sorgarstund
núna
áramót!
Vona að ég sé ekki að gleyma OF miklu ;D

Ég elska ykkur, og sé ykkur von bráðar.

Arohanui,
Magga ;*

Heisann Hoppsann!!!

Gledileg jol og gaefurikt ar!

takk fyrir mig...

sidan sidast hef eg skellt mer til New Plymouth med Breonnu.... vid heimsoktum Leu, bandariska vinkonu okkar ur sudureyjarferdinni og hun syndi okkur um baeinn hennar. Vid lobbudum upp (ad) Mt. Taranaki... saum eitthvad prik sem byr til rafmagn (veij) og fifludums tar a baej... tetta var allt gott og blessad. og afskaplega gaman ad sja kvikidnid aftur...

tad var hinsvegar ekki svo gaman ad sitja i rutu alein i sex klukkutima.... ojaeja!

Svo er marr bara buinn ad njota lifsins, kikja a klubbana og svona...! og alltaf i einhverjum ogleymanlegum gistikvoldum hja vinum og vandamonnum...!

Jolin her voru frekar spes... og eg er viss um ad eg muni segja ykkur fra tvi tegar eg kem heim ... hahah

Tad er adeins vika eftir af ARINU minu i nz... og eg aelta ad njota hennar i botn!!! tott hun verdi abyggilega sorglegri og omurlegir en allt...

Eg bid ad heilsa ykkur... !
Tid megid buast vid einu loka bloggi um aramotin ^^

eigid god aramot, gangid haegt um gledinnar dyr....
s.s ekki drekka OF mikid...

... se ykkur bradum
magga.....

Sumt verður ekki metið til fjárs...

Eins og þið væntanlega sjáið er eitt eða tvennt búið að breytast hér á bæ.... Vildi ekkert vera að vesenast með kommentin mín..! Ég kannski breyti þessu þegar ég er komin heim heim... Ísland heim.

Eitt af því mörgu sem ég nenni ekki að vera að gera núna... ásamt að blogga.
Eitt sinn sagði einhver "A picture is worth a thousand words".... ég ætla að gefa ykkur nokkuð þúsund þá... kannski útskýra smá fyrir neðan..


Þessi mynd var tekinn á þarsíðasta kaflafundi Waitakere kaflans. Við vorum öll samankomin heima hjá Brendu AFS ömmu í tilefni af Guy Fawkes Night. Það var grillað, sungið og kastað rugby bolta til og frá samkvæmt hefðum. Síðar var kveikt bál þar sem þessi myndarlegi spýtukall var brenndur í fylgd flugelda og fagnaðar. Við fimm frá vinstri erum mjög góðir vinir og búin að vera það síðan í febrúar, Ece er ný og fellur vel inní hópinn, en þessi til hægri veit ég ekkert hver er.





Við fórum síðasta laugardag á Descarga Cubana, út að borða með tjútti og drykkju. Þetta var óvænt afælisboð handa vinkonu minni Breonnu frá Malasíu í tilefni af komandi afmæli hennar. Hún hafði átt frekar erfiðan dag greyið en við skiptinemarnir kættum hana til muna! Við hliðiná þessum stað var barinn "Family" sem er stórskemmtilegur gaybar! Við náðum að smella mynd með nokkrum skvísum þaðan.




Þessi mynd var tekin rétt fyrir Jólaskrúðgöngu Farmers verslunarinnar (Farmers Santa Parade) í Nóvember. Þetta var frábær dagur og þar að auki frábær lífsreynsla. Sólin og hitinn gerði það frekar erfitt að komast í jólafýlinginn og gönguna erfiðari enn við mátti búast, en þetta var samt gaman. Ég og Claudia vorum svokallaðir Rolly Pollies, Breonna býfluga og Riikka maríubjalla.


Þessi fagra mynd var tekin í átján ára afmæli Riikku fyrir langa löngu. Mjög skemmtilegt partý þar sem gömul kona hrissti rassinn sinn meira en flestir aðrir þar á bæ. Claudia frá Guatemala var í heimsókn frá Palmy, þessi í bleika.


Mynd tekin 27. Nóvember á ströndinni í Waiheke. Krakkarnir komu og skemmtu sér konunglega í tilefni að ég varð gömul. Norðurlandarbúar hér í góðu glensi.

Myndin tekin á Kawarau bridge, Queenstown í suðureyjarferðinni minni. Þetta var rétt áður en ég lét mig detta 43 metra og ofaní á!

Hið fulloðrna líf...

Mánudagurinn síðastliðinn kom fljótt, of fljótt. Ég get ekki sagt að ég hafi með nokkru móti verið undirbúin fyrir þessu miklu tímamót í lífi mínu. Frá þessum degi er ég sögð vera nógu þroskuð til að sjá um mig sjálf. Nógu ábyrg til að taka afleiðingum gjörða minna. Nógu öldruð til að fara í fangelsi.

Aðeins sjö ár í viðbót og ég er er nægilega gömul til að sinna embætti forseta Íslands. Sjö ár í minn 35 afmælisdag. Þetta er ekki hugsun sem mér þykir afar vænt um. Sjö ár...

Fyrir sjö árum var ég ellefu ára. Það er um það leiti er hin ógleymanlega og afar dramantíska "Frístæl" keppni var. Þegar stúlknaskari hóp 15 í Fossvogsskóla skiptis gjörsamlega í tvennt og kepptust eins og lífið lá við. Þegar Sigrún Tinna var tiltörulega ný komin aftur í Fossvoginn og rifrildi í þeim fyrrverandi stúlknahóp voru aðeins of tíð. Þegar gelgju skeiðið reið yfir ´88 árganinn. Fyrir sjö árum. Það er alls ekki langur tími.

Tími er eitthvað sem við ættum að varðveita meira. Það er eitthvað sem mér hefur tekist að skilja hér í Nýja Sjálandi.

Ojæja. Nóg af væmninni og sögusögnunum!

Ég vaknaði þann 27unda við afmælissöng frá múttu og Hine. Þær mæðgurnar færðu mér te og gjöf í rúmið.

Síðar um morguninn komu Riikka, Claudia og Breonna mér á óvart heima hjá mér með köku og kerti. Þeim til mikillar skemmtunnar voru þetta galdra kerti sem ekki var hægt að blása út. Húsið mitt fylltist af reyk og vax lak niður á kökuna sem þær höfðu bakað. Við sátum í eldhúsinu og spjölluðum um daginn og veginn.

Daginn áður, þann 26, var Jólaskrúðganga Farmers verslunarinnar niður Queen street. Við afs krakkarnir tókum auðvitað þátt í henni. Ég sjálf var Rolly Polly, eða á góðri Íslensku feitur leikfanga trúður. Þetta var ógleymanleg lífsreynsla og mjög gaman! Eftir jólaskrúðgönguna, á Starbucks hafði Alida komið með þá hugmynd að fara til Waiheke til að fagna afmæli mínu og hafði hún ásamt Mortiz skipulagt ferðina sama kvöld.

Um þrjú þrjátíu þann 27unda hittist hópur af skiptinemum fyrir utan ferjubygginguna tilbúinn í ævitnýraleit á Waiheke. Um ellefu af okkur gistu þarna yfir kvöld.

Við gistum á litlu sætu gisitheimili nálægt ströndinni með heitum potti og sundlaug. Stelpurnar í herbergi en stákarnir í tjöldum. (Pabbi feginn??? haha) Við ráfuðum um "bæinn" þarna í leit að æti og enduðum með bjóra, snakk og brauð. Við héldum á ströndina um stund og svo aftur á gistiheimilið þar sem ég kenndi Finnboga að strauja og sum okkar nýttum heita pottinn í botn og ræddum við Ítali, Englendinga og auðvitað Íslendinga (pabbi og bróðir Ali). Þegar við vorum farin að verða of hávær til að fólk gæti sofið fórum við á ströndina þar sem Facundo lék fyrir söng, ég hljóp á bekk, Bjarki kveikti bál, Martin spilaði og söng, Moritz klifraði tré, Alida spilaði og söng, við þyrmdum lífi kakkalakka og allir frusu í hel.

Aftur á gistiheimilinu var fólk snöggt að hoppa undir sæng.... svo var spjallað þangað til að allir rotuðust. Þetta var einnkar köld nótt en fimm strákar gistu í tveimur tjöldum með aðeins einn svefnpoka... !! :D

Þetta var frábær afmælisdagur en gamanið endaði ekki þarna. Næsta morgun skellutm við okkur á ströndina þar sem ég uppgvötaði mína fötlun í að kasta á milli rugby bolta. Tulio og Facu gáfu mér svo afmælisgjöfina mína sem fólst í því að speyja mig með kampavíni og láta mig þamba rest... góð gjöf!! (nei mamma ég er ekki alki) Ég og Gunnhild skelltum okkur svo í sjóinn og svo var legið í sólbaði og spjallað þangað til að við þurftum að ná ferju heim.

Auðvitað misstum við af ferjunni ...

Í Auckland röltuðum við um um stund áður en við gjörsamlega gátum ekki heyft okkur meir, þá var ferðinni heitið heim.

Heima hafði svo mútta undirbúið uppáhaldskvöldmatinn minn, hún keypti meira segja Pavlovu og kók!!!! Það er nú naumast! Filo kom í mat og hún gaf mér frumlegasta afmæliskort+gjöf sem finnst má!

Þetta var frábært afmæli, án efa besta afmælið mitt hingað til !!! Ég verð að segja að ég er bjartsýn á framtíðina og komandi ár.

Ég vil þakka eftirfarandi aðilum:

  • Öddu og Jóa, ömmu og afa fyrir að hringja, afmælisóskirnar og inleggið :)
  • Mömmu og pabba, Huldu og Jóa fyrir að hringja, afmælisóskirnar, innleggið og þetta rauða (?) :D
  • Mónu fyrir að hringja og afar skemmtilegt samtal!
  • Magga fyrir að að hringja og smsið! (sorry heyrði ekki í símanum, var í sjónum)
  • Sugerpillows fyrir bloggið!! :D
  • Riikku, Claudiu og Breonnu fyrir kökuna og gleðina
  • Alidu fyrir frábæra hugmynd!!!!
  • Alidu, Tulio, Gunnhild, Moritz, Avi, Lasse, Jakob, Facundo, Martin, Stephanie, Finn og Paul fyrir gamanið á Waiheke...!!!
  • Öllum sem sendu kveðjur...
  • Fjölskyldunni hér.... fyrir allt sem þau gera! :D
  • Öllum þeim sem ég er að gleyma

TAKK TAKK TAKK KÆRLEGA FYRIR!!! ;*
Jafnvel þó þið séuð ekki hjá mér, þá gerið þið daginn minn bjartann bara með því að vera til!! :)
Já... væmnin gerir útaf við mig á köflum! ;D

ELSKA YKKUR ÖLL!


Margrét Hanna, hin sjálfráða

p.s. er að setja inn myndir frá síðasta skóladeginum, prizegiving og þær fáu sem ég tók á afmælisdaginn


P.S.S.
MÉR SKILST AÐ COMMENTIN SÉU EITTHVAÐ BILUÐ... REYNI AÐ LAGA ÞETTA VIÐ TÆKIFÆRI.... EINNIG EINS OG HÚN ELSKU BESTA SYSTIR MÍN BENNTI Á ÞÁ ER VÍST 18+7 EKKI 35 LENGUR... ! JEMINN...! VONIR MÍNAR UM FORSETAEMBÆTTIÐ ERU BROTNAR.... !




© 2006 Magga | Blogger Templates by GeckoandFly.
No part of the content or the blog may be reproduced without prior written permission.